Amerískar pönnukökur úr súrdeigi

Það er fátt sem ég kann að meta jafn vel og bröns. Að vakna snemma, bardúsa í eldhúsinu og úða í mig óhóflegu magni af kaffi á fastandi maga. Setjast svo og juða í sig gúmmelaði og enn meira kaffi. Helst í góðra vina hópi með ágætis kaffiskjálfta. Og þar sem það er hátíðlegur kosningadagur þá er nauðsynlegt að byrja daginn á bröns og fara yfir samfélagsmálin. Og borða pönnukökur.

Ég hef reynt allskonar pönnukökuuppskriftir í gegnum tíðina en þessi þykir mér alltaf langbest. Pönnukökurnar verða svo loftmiklar og léttar. Þetta er alveg fullkomin uppskrift fyrir umframmagn af súr sem að kona vill ekki hella.

Pönnukökudeig – ca 15 pönnukökur
Erfiðleikastig 1 á skalanum 1 til 5


1 bolli / 230 gr. mjólk
1 1/4 bolli / 165 gr. hveiti
1/4 bolli / 115 gr. spruðlandi hress súr
1 msk olía t.d. kókosolía eða Isio4
1 stórt egg
2 msk sykur / 1 msk agavesýróp
1 tsk matarsódi
1 tsk salt

Blandið saman hveiti, mjólk og súr í skál og leyfið að standa í 30 mín. Ég viðurkenni fúslega að ég nenni alls ekki alltaf að láta soppuna standa en finn ekkert ofsalega mikinn mun. Blandið restinni af hráefnunum við en passið ykkur að hræra deigið ekki of mikið.

Hitið smjör á pönnu. Ég nota sjálf pönnukökupönnu og blanda bráðna smjörinu út í deigið. Deigið á að vera ágætlega þykkt. Ef að þið viljið hafa það þynnra setjið þá aðeins meiri mjólk út í. Þá verða pönnukökurnar eðlilega þynnri. Stundum vil ég hafa þær þykkar og blanda þá smá gríska jógúrt á móti mjólkinni.
Ausið dágóðri slummu á pönnuna og steikið þar til efri hlutinn er orðinn nokkuð þurr og loftkenndur. Snúið pönnsunni þá við og steikið á hinni hliðinni þar til hún er orðin gyllt á lit. Njótið með hlynsýrópi, ávöxtum, súkkulaðismjöri, osti, smjöri, reyktum laxi eða bara hverju sem ykkur lystir. Það er bara mikilvægast að borða mikið og drekka mikið kaffi með og hafa það huggulegt. Og kjósa, það er mjög mikilvægt líka.

po%cc%88nnsurua
Úa blæs á pönnukökurnar til að kæla þær

5 thoughts on “Amerískar pönnukökur úr súrdeigi

  1. Sæl ég er byrjandi í faginu reyndar búin að baka nokkrum sinnum og gengur ágætlega ☺ þú talar um að taka súrinn út og fóðra kvöldinu áður. Tekurðu þá bara mömmuna alla og fóðrar. Það sem ég hef verið með er alltaf tekin 1 msk sem í er sett 200g mjöl og einhver vökvi sem ég man ekki 😉 þá er reyndar alltaf afgangur. Sem ég tími ekki að henda.
    Ég er að undirbúa pönnukökurnar frá þér núna ☺

    Líkar við

    1. Sæl Jóvina

      Þetta er mjög misjafnt eftir uppskriftum. Í þessari er maður bara að nota beint úr súrdeigsmóðurinni. Í sumum uppskriftum tekur maður af súrdeigsmóðurinni ca 2 – 8 tímum eftir að hún hefur verið fóðruð og býr til nokkurskonar hefi eða soppu, sem keyrir deigið í gang. Svo eru auðvitað enn aðrar aðferðir þar sem maður tekur bara af kaldri súrdeigsmóður beint úr ísskápnum, ég geri það sjálf reyndar aldrei.
      Það er alveg eðlilegt að það verði umframmagn af súrdeigsmóðurinni og hefinum sem að maður býr til. Það er þau auðvitað best að reyna að forðast það en pönnukökuuppskriftin er einmitt hugsuð fyrir þetta umframmagn. Vonandi svarar þetta spurningunni þinni 🙂

      Líkar við

  2. Takk fyrir þessa uppskrift að amerískum pönnukökum. Ég notaði umframsúr í hana og þær voru æðislegar. Meðfærilegt og gott deig. Ég mun prófa meira af síðunni þinni. Hún er svo einföld og falleg.

    Líkar við

Færðu inn athugasemd